Stjörnuspá fös. 3. maí. 2024

Stjörnuspá
fös. 3. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.

20. apríl - 20. maí

Reyndu að forðast árekstra við aðra því þeir leiða aðeins illt af sér. Þú hefur oft skipt um skoðanir yfir árin, en sumum hugmyndum viltu alls ekki láta af.

21. maí - 20. júní

Þú efast um getu þína til að kljást við snúin vandamál þessa dagana, alveg sama hversu mikla reynslu þú hefur að baki.

21. júní - 22. júlí

Vinnan reynist frábær skemmtun í dag. Láttu allar óþarfa áhyggjur lönd og leið og einbeittu þér að augnablikinu.

23. júlí - 22. ágúst

Þú ert á báðum áttum um það hvort þú eigir að kaupa eitthvað í dag eða ekki. Mundu að frelsi þitt endar þar sem frelsi annarra tekur við.

23. ágúst - 22. september

Það er eitt og annað sem svífur í lausu lofti hjá þér svo þú þarft að ná betri tökum á hlutunum. Hugsaðu þig því tvisvar um.

Vog
23. september - 22. október

Ef þú gleymir þér gætu vandamál annarra farið að trufla þitt eigið líf. Það getur verið erfitt að halda haus, þegar að manni er sótt úr öllum áttum.

23. október - 21. nóvember

Allt hefur sinn stað og stund og nú þarftu ekki annað en grípa tækifærið þegar það gefst. Allir sem hafa látið draumana rætast, hafa komist yfir hindranir.

22. nóvember - 21. desember

Sýndu þolinmæði því þinn tími kemur og þá er gott að hafa hreinan skjöld. Taktu ekki meira að þér en þú ræður vel við.

22. desember - 19. janúar

Mikilvægar manneskjur hafa áhuga á því sem þú hefur til málanna að leggja. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.

20. janúar - 18. febrúar

Nú fer að líða að því að þú njótir árangur erfiðis þíns. Reyndu að fara gætilega og láta þér ekki sjást yfir smáatriði og vertu sveigjanlegur.

19. febrúar - 20. mars

Vilji er allt sem þarf og þú verður að stilla þig inn á að vilja hlutina áður en þú freistar þess að framkvæma þá. Sláðu samt til, það mun fara fram úr þínum björtustu vonum.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og