Einn alvarlega slasaður eftir umferðarslys

Einn var fluttur með þyrlu til aðhlynningar.
Einn var fluttur með þyrlu til aðhlynningar. mbl.is/Árni Sæberg

Einn var fluttur með alvarlega áverka, en þó ekki lífshættulega, eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi síðdegis í gær.

Þetta staðfestir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.

Bíllinn kastaðist á manninn þar sem hann stóð

Ekið var á kyrrstæðan bíl sem lagt hafði verið vel úti í vegkanti en snéri á móti akstursstefnu. Ökumaður kyrrstæða bílsins var fyrir utan bifreiðina þegar bíllinn kastaðist á hann.

Viðkomandi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Sveinn kveðst ekki vita meira um líðan hans að stöddu en segir að áverkarnir hafi verið alvarlegir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert