Bíll stóð í ljósum logum á Sæbraut

Eldur kom upp í bifreið í Reykjavík.
Eldur kom upp í bifreið í Reykjavík. mbl.is/Eyþór

Viðbragðsaðilar hafa lokað fyrir umferðarkafla á Sæbraut þar sem eldur kviknaði í fólksbíl.

Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Tilkynning um eld í bensínbíl barst slökkviliðinu rétt fyrir kl. 21 í kvöld og slökkvilið er enn á vettvangi.

Svo virðist sem engan hafi sakað, samkvæmt þeim litlu upplýsingum sem Sigurjón hefur undir höndunum. Hann kveðst ekki vita hversu margir voru í bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert