Fullnægingarlaus 36 ára kona spyr

Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur.
Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur. Ljósmynd/Gabrielle Motola

Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur, eða Ragga Eiríks eins og hún er kölluð, heldur úti vefnum Raggaeiríks.com. Hér er hún spurð að því, af 36 ára gamalli konu, hvernig hún eigi eiginlega að fara að því að fá fullnægingu.

Hæ Ragga


Ég er með „smávægilegt“ vandamál. Ég hef aldrei runkað mér og hef aldrei fengið fullnægingu. Ég hef prófað að leika við sjálfa mig en guggna alltaf, er feimin við það. Finnst ég ekki kunna þetta og veit ekki hvað ég á að gera. Þar af leiðandi er þetta ennþá meiri smán. Hef rætt þetta við vinkonur mínar. s.s um það hvernig maður eigi að runka sér, fæ eiginlega alltaf sömu svörin. „Æi þúveist bara leika við þig…“

En hvernig leik ég við mig? Hvað get ég gert til þess að auka líkurnar á því að ég fái fullnægingu? Jú runka mér, en hvernig geri ég það?

Það að „kunna“ ekki að leika  við mig finnst mér mjög skömmustulegt og ég þori lítið að tala um þetta.

Ég er samt ekkert feimin þegar á hólminn er komið með karlmanni, langt því frá. Hef prófað mjög margt hvað kynlíf varðar.  S.s reyna að finna út hvað það er sem að getur hjálpað mér. En að rúnka mér hef ég ekki prófað eða klárað réttara sagt. Geturðu gefið mér einhver ráð?

Kæra 36 ára

Plís ekki skammast þín eða vera vond við sjálfa þig út af þessu. Prófaðu að setja einhverja aðra konu sem þér þykir vænt um í þín spor og spáðu í tilfinningar þínar gagnvart henni. Ég þori að veðja að þú mundir alls ekki hafa svona neikvætt viðhorf ef vandinn væri ekki þinn.

Þá er spurningin hvort ég get hjálpað þér áleiðis í átt að fullnægingu…
Hér er og golítill fræðslufyrirlestur frá kynlífsráðgjafanum Tristan Taormino. Byrjaðu á að lesa í gegn um hann - það er alltaf gott að skerpa aðeins á bóklegu þekkingunni þó að verklegi þátturinn sé líklega mikilvægari fyrir þig.

Næsta skref er dásamlegur vefur Betty Dodson og Carlin Ross. Þar eru litlir fyrirlestrar og vídeó og ógrynni af fullnægingarhvatningu fyrir konur.

Svo þarftu að kaupa þér titrara. Titrari er gríðarlegt þarfaþing og getur hjálpað mikið. Hendur eru auðvitað dásamleg nautnatól en stundum þarf bara örlítið meiri kraft og hraða en fingurnir ráða við. Titrari þreytist ekki og hefur ekki húð sem soðnar í píkusafa.

Hér eru svo nokkur Rögguráð sem eru tekin úr væntanlegri bók minni sem ber vinnuheitið Klofvegahandbókin:

  • Skipulegðu stefnumót við sjálfa þig. Slökktu á símanum og reyndu að búa þannig um hnúta að þú verðir ekki trufluð í klukkutíma eða svo.
  • Notaðu hendur til að strjúka þér á stöðum sem örva þig kynferðislega. Ef þú ert ekki viss hvaða staðir þetta eru skaltu strjúka þig um allan líkamann og uppgötva þína uppáhaldsstaði. Staldraðu svo við staðina sem örva þig og veita þér vellíðan.
  • Mörgum konum (og körlum) finnst gott að nota ímyndunaraflið til að magna upp kynferðislega örvun. Aðrir lesa eða horfa á erótískt efni í sama tilgangi. Finndu hvað fellur að þínum smekk – hvað kveikir í þér?
  • Þegar þú ert orðin kynferðislega æst skaltu staldra við píkuna og snípinn og strjúka þig með fingrum eða titrara eins og þér finnst best. Titrarar eru frábærir og ef þú átt ekki einn slíkan ráðlegg ég þér eindregið að ráða bót á því hið fyrsta.
  • Á meðan þessu stendur skaltu reyna að slaka á, anda djúpt og rólega og sleppa áhyggjum af amstri hversdagsins.

Ég vona sannarlega að svarið mitt verði þér til innblásturs og aukinnar hamingju.
Bestu kveðjur,

Ragga

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál