Orri Steinn Óskarsson, landsliðsframherjinn ungi í knattspyrnu, er einn þeirra sem tilnefndir eru í kjörinu á besta unga leikmanni dönsku úrvalsdeildarinnar í apríl.
Orri lauk mánuðinum á glæsilegan hátt með því að skora öll þrjú mörk FC Köbenhavn í sigri á AGF, 3:2, á Parken á sunnudaginn.
Auk hans eru tilnefndir Andreas Schjelderup og Ibrahim Osman frá Nordsjælland, Dario Osorio frá Midtjylland, Mads Enggård frá Randers og Oliver Provstgaard frá Vejle.