Handknattleiksmaðurinn Róbert Sigurðarson yfirgefur norska úrvalsdeildarfélagið Drammen í sumar eftir eins árs dvöl.
Róbert hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í tveggja ára samningi sínum við félagið.
Á heimasíðu Drammen kemur meðal annars fram að Róbert vilji vera nær kærustu sinni, Andreu Jacobsen, landsliðskonu í handknattleik, en hún mun ganga til liðs við HSG Blomberg-Lippe í Þýskalandi í sumar.
Róbert gekk til liðs við félagið í fyrrasumar eftir sex ár og tvo Íslandsmeistaratitla með ÍBV. Þá er hann Akureyringur að upplagi.
Drammen féll úr leik fyrir norsku meisturum Kolstad í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Noregi á dögunum.