Beint: Stöðugleikarnir

Fundurinn fer fram í Hörpu.
Fundurinn fer fram í Hörpu. mbl.is/Árni Sæberg

Atvinnulíf, stjórnvöld og stéttarfélög ræða eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn í beinu streymi frá Hörpu núna kl. 11:45 undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir.

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Birgisson , formaður Starfsgreinasambandsins, og Jónína Guðmundsdóttir , framkvæmdastjóri Coripharma, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur , framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Þá flytja Finnur Oddsson , forstjóri Haga, og Sigurður Brynjar Pálsson , forstjóri BYKO, hugvekjur.

Fylgjast má með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.

„Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu þannig sitt af mörkum til efnahagslegs stöðugleika komandi ára.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta.

Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni við kjarasamninga, með hækkandi sól, undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir .

Sofnum ekki á verðinum. Verkefnið er ekki búið. Verum samtaka um aukna hagsæld,“ segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK