Hefur ekki snert áfengi í fimm ár

Anne Hathaway drekkur ekki vín og er ánægð með lífið.
Anne Hathaway drekkur ekki vín og er ánægð með lífið. AFP/KENA BETANCUR

Hollywood-stjarnan Anne Hathaway hefur verið edrú í fimm ár. Hún er mjög stolt af edrúafmælinu og segir það mikið afrek. 

„Ég tala venjulega ekki um það en ég er búin að vera edrú í fimm ár,“ sagði Hathaway í viðtali við New York Times á dögunum. Sagði Hathaway jafnframt að henni liði eins og það væri stórt afrek að ná þessum áfanga. 

„Ég vissi innst inni að þetta væri ekki fyrir mig,“ sagði Hathaway í viðtali í Vanity Fair í mars. Henni fannst erfitt að segja fólki frá því að hún væri hætt að drekka. Hún sagði fólk ekki mótmæla þegar það væri með ofnæmi fyrir einhverju og tók hún þá afstöðu í sambandi við áfengi. Hún dæmir þó ekki fólk sem drekkur. 

Hathaway hefur einnig greint frá því að hún hafi ákveðið að setja tappann í flöskuna fyrir syni sína. Hún vill ekki vera þunn í kringum syni sína. 

Anne Hathaway þarf ekki að hafa áhyggjur af þynnku.
Anne Hathaway þarf ekki að hafa áhyggjur af þynnku. AFP/FRAZER HARRISON
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál