Best í annarri umferð

Sandra María Jessen skoraði fjögur mörk gegn FH.
Sandra María Jessen skoraði fjögur mörk gegn FH. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Sandra María Jessen, framherji og fyrirliði Þórs/KA, var besti leikmaðurinn í annarri umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Sandra átti frábæran leik þegar Akureyrarliðið vann stórsigur á FH, 4:0, í Kaplakrika á laugardaginn en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörkin. Tvö í fyrri hálfleik og hin tvö á lokakafla leiksins.

Fyrir þessa frammistöðu fékk Sandra hæstu einkunn sem Morgunblaðið gefur, þrjú M, og er hún fyrsti leikmaðurinn í Bestu deildum kvenna og karla í ár til að fá þessa einkunn sem ekki er gefin oft á ári.

Sandra er 29 ára gömul og hefur leikið allan sinn feril á Íslandi með Þór/KA, frá 16 ára aldri. Hún er markahæsti leikmaður félagsins í efstu deild með 94 mörk og þriðja leikjahæst með 155 leiki. Hún varð Íslandsmeistari með liðinu 2012 og 2017 en árið 2012 skoraði hún 18 mörk í deildinni, þá 17 ára gömul, og varð markahæst ásamt Elínu Mettu Jensen, jafnöldru sinni úr Val.

Nánar um Söndru í Morgunblaðinu í dag og þar er birt úrvalslið blaðsins úr annarri umferð Bestu deildar kvenna

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert