Mætir sínu gamla félagi í úrslitaeinvíginu

Sigvaldi Björn Guðjónsson og liðs félagar hans í Kolstad mæta …
Sigvaldi Björn Guðjónsson og liðs félagar hans í Kolstad mæta Elverum í úrslitaeinvíginu í Noregi. AFP/Ina Fassbender

Sigvaldi Björn Guðjónsson og liðsfélagar hans í norska Kolstad mæta Elverum í úrslitaeinvígi norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik en Sigvaldi Björn lék með liðinu frá 2018 til 2020.

Elverum hafði betur gegn Arendal í öðrum leik liðanna í undanúrslitum, 41:30, í Arendal í dag en Dagur Gautason skoraði fjögur mörk fyrir Arendal í leiknum.

Kolstad vann 2:0-sigur gegn Drammen í hinu undanúrslitaeinvíginu en úrslitin hefjast hinn 22. maí á heimavelli Kolstad sem endaði í efsta sæti deildarinnar en Elverum hafnaði í öðru sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert