Stjarna Keflavíkur ekki meira með?

Remy Martin er liði Keflavíkur afskaplega mikilvægur.
Remy Martin er liði Keflavíkur afskaplega mikilvægur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Remy Martin, sem hefur farið á kostum með Keflavík, reif hásin gegn Grindavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta í gærkvöldi. 

Martin verður því ekki meira með Keflavík á tímabilinu en Vísir greinir frá. 

Hásinin á að hafa rifnað en hann fór ekki alveg í sundur. Meiðslin eru þó talin það alvarlega að hann tekur ekki frekari þátt í úrslitakeppninni með Keflavík. 

Grindavík vann leikinn í gær, 102:94, en Martin var búinn að skora 18 stig og gefa þrjár stoðsendingar er hann fór af velli um miðjan annan leikhluta. 

Liðin eigast næst við í Keflavík næsta laugardagskvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert