Drjúgur er meistararnir fóru í úrslit

Óðinn Þór Ríkharðsson í leik með Kadetten.
Óðinn Þór Ríkharðsson í leik með Kadetten. Ljósmynd/Kadetten

Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðsmaður í handknattleik, lék vel þegar lið hans Kadetten Schaffhausen tryggði sér sæti í úrslitaeinvígi svissneska handboltans með öruggum sigri á Pfadi Winterthur, 33:26, í oddaleik liðanna í Schaffhausen í dag.

Í úrslitum mætir Kadetten annað hvort Kriens eða Zürich, sem mætast er þetta er ritað, einnig í oddaleik.

Óðinn Þór lét vel að sér kveða og skoraði fjögur mörk fyrir Kadetten.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert