Gagnrýna aðferðir við áhættumat

Sé það svo að stærð villta laxastofnsins sé ofmetin í …
Sé það svo að stærð villta laxastofnsins sé ofmetin í áhættumati erfðablöndunar má gera ráð fyrir að endurskoðun leiði til samdráttar í hámarkslífmassa. mbl.is/Þorgeir

„Verulega er vanmetið hversu oft og hve mikið er farið yfir ágengnismörk í einstökum ám,“ segir í álitsgerð sem unnin er af Arev tölfræði fyrir Landssamband veiðifélaga. Var fyrirtækinu gert að fara yfir þann þátt áhættumats Hafrannsóknastofnunar sem lýtur að áhættumatslíkani fyrir ágengni eldislax í laxveiðiám á Íslandi, að því er fram kemur í umfjöllun sem birt var í síðasta blaði 200 mílna.

Vert er að geta þess að endurskoðun áhættumatsins fer nú fram, en Hafrannsóknastofnun óskaði eftir því í október síðastliðnum að Samráðsnefnd um fiskeldi myndi fresta umfjöllun um áhættumat erfðablöndunar þar þtil lokið væri við endurskoðunina. Var ákvörðunin tekin í kjölfar slysasleppingu fjölda eldislaxa úr sjókví í Patreksfirði.

Í álitsgerðinni sem unnin var fyrir Landssambandið er bent á fleiri þætti sem talið er að betur megi fara og segir að við mat á ágengnismörkum sé oft stuðst við erlendar hlutfallstölur. „Flestar eiga þær sér einhverja stoð í ritrýndum fræðigreinum, en eru þó oftast staðfærðar. Mikið vantar upp á að sú staðfærsla sé í samræmi við góða tölfræðivenju.“

Þá sé ekki tekið tillit til þess að villtum fiskum hafi verið að fækka í flestum ám undanfarin ár við mat Hafrannsóknastofnunar á fjölda þeirra. Er notkun tíu ára meðaltals við mat á fjölda villtra laxa í ám sagt valda „tölfræðilega marktæku ofmati“ og er lagt til að stuðst verði frekar við fimm ára meðaltal.

„Þetta er ágætis ábending sem við skoðum,“ svarar Ragnar Jóhannsson, rannsóknastjóri á ferskvatns- og eldissviði Hafrannsóknastofnunar, spurður um þá gagnrýni sem snýr að notkun tíu ára meðaltals.

Umfjöllunina má lesa í heild sinni í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,76 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,55 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,76 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,55 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »