Stjörnuspá lau. 4. maí. 2024

Stjörnuspá
lau. 4. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.

20. apríl - 20. maí

Samstarf þitt við aðra byggist á því að þú getir breytt til. Einhverjir vandamenn eru óánægðir með það hversu lítinn gaum þú gefur þeim.

21. maí - 20. júní

Þótt aðstæður á vinnustað séu ekki alveg eftir ykkar höfði skuluð þið ekki láta þær ergja ykkur. Skipulagning er lykilorð fyrir þá sem vilja færast upp á við.

21. júní - 22. júlí

Þú brýst út úr sama gamla farinu og finnur ný tækifæri og nýjar lausnir í dag. Þegar þú ert viðkvæmur fyrir viðbrögðum, skaltu athuga hvaðan þau koma.

23. júlí - 22. ágúst

Þú gætir lent í óþægilegri aðstöðu er þú leitast við að aðstoða vin í vanda. Farðu vel með öll trúnaðarmál.

23. ágúst - 22. september

Verkefni sem þú vinnur að fær meiriháttar undirtektir. Gættu þess að þú missir ekki yfirsýn því þá fer botninn úr öllu saman.

Vog
23. september - 22. október

Þú þarft ekki að vera með neina eftirsjá yfir því að þér hafi tekist betur upp en samstarfsmönnum þínum. Sjálfsagi getur verið erfiður í byrjun en venst eins og allt annað.

23. október - 21. nóvember

Þér finnst þú vera kominn á endastöð svo þér er nauðsyn að setjast niður og taka öll þín mál til endurskoðunar. Fólk segir þér hluti sem þú vissir ekki.

22. nóvember - 21. desember

Ef þú setur þér of stífa dagskrá er hún dæmd til að mistakast nema þá aðeins að þú leyfir þér ekki að njóta augnabliksins. Næstu daga reddar þú því sem er ekki jafn frábært.

22. desember - 19. janúar

Það er margt sem hvílir á þér og þér finnst erfitt að einbeita þér að hlutunum. Taktu lífið ekki of alvarlega.

20. janúar - 18. febrúar

Þótt þig langi að hafa hönd í bagga með öðrum, þá eru þeirra mál stundum utan og ofan við þitt færi. Gerðu málin upp og þá líður þér betur.

19. febrúar - 20. mars

Þótt þér finnist hlutirnir athyglisverðir er ekki þar með sagt að öðrum finnist svo. Litlu góðu verkin ýta þér í rétta átt að áfangastað.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og