Myndir af bílbrunanum í Kópavogi

Bíllinn varð alelda.
Bíllinn varð alelda. Ljósmynd/Aðsend

Bíllinn sem kviknaði í á þriðja tímanum í nótt stóð á bílastæði við Hörðukór í Kópavogi.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í nærliggjandi fjölbýlishúsi varð bíllinn alelda.

Ljósmynd/Aðsend

Bifreiðin mannlaus

Stefán Kristinsson varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sagði í samtali við mbl.is í morgun að altjón hefði orðið á ökutækinu. Slökkviliðið var fljótt að slökkva eldinn eftir að viðbragðsaðilar komu á vettvang.

Í dagbók lögreglu kom fram að bifreiðin hefði staðið mannlaus. Þá hefði engin hætta stafað af eldinum.

Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert