Spursmál: Halla Hrund situr fyrir svörum

Eva Dögg Davíðsdóttir, Halla Hrund Logadóttir og Guðmundur Árni Stefánsson …
Eva Dögg Davíðsdóttir, Halla Hrund Logadóttir og Guðmundur Árni Stefánsson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum.

Halla Hrund Loga­dótt­ir for­setafram­bjóðandi sat fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála und­ir stjórn Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptökuna má sjá í spilaranum hér að neðan, á Spotify og Youtube og er öllum aðgengileg.

Krefjandi spurningar

Lagðar voru krefjandi spurningar fyrir Höllu Hrund í þættinum er tengjast valdsviði forsetans og knúið á um svör hvers konar forseti hún hyggst verða nái hún kjöri. Þar voru málskotsrétturinn, stjórnarskráin, tungumálið og margt annað til umræðu.

Spurningar um fortíð Höllu Hrundar og störf hennar sem orkumálastjóri voru einnig dregnar upp en Halla Hrund var lítt þekkt í íslensku samfélagi áður en hún ákvað að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands.

Óvenjuleg tengsl

Í byrjun apríl lýsti Halla Hrund yfir forsetaframboði sínu. Í kjölfarið óskaði hún eftir tímabundnu leyfi frá starfi sínu sem orkumálastjóri hjá Orkustofnun til að einbeita sér að fullu að framboðinu.

Vafi hefur leikið á tengslum Orkustofnunar við verktaka sem nú starfa í kosningateymi Höllu Hrundar.

Þykir mörgum spurningum ósvarað hvað tengslin varðar og hugmyndir uppi um að þau séu af óvenjulegum toga, sé tekið mið af nánum tengslum hennar við Orkustofnun ríkisins þar sem hún hefur verið hæstráðandi fram til þessa.

Var Höllu Hrund gert að svara fyrir fyrrnefnd tengsl.

Lífleg fréttavika að baki

Yfirferð á fréttum vikunnar var í sérlega góðum höndum í þættinum. Eva Dögg Davíðsdóttir nýr þingmaður Vinstri Grænna mætti í settið ásamt Guðmundi Árna Stefánssyni varaformanni Samfylkingarinnar til að ræða það sem bar hæst á góma í vikunni sem senn er á enda. Sköpuðust líflegar og upplýsandi umræður þeirra á milli.

Ekki missa af fræðandi og fjörugri umræðu í Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert