Troðið út úr dyrum í brauðtertukeppni Katrínar Jakobs

Bessastaðabrauðtertan var valin fallegasta brauðtertan.
Bessastaðabrauðtertan var valin fallegasta brauðtertan. mbl.is/Ottar Geirsson

Fram­boð Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur fram­bjóðanda til for­seta Íslands efn­di til brauðtertu­keppni í gærdag, laug­ar­dag­inn 11. maí. Brauðtertu­keppn­in fór fram á kosn­inga­skrif­stofu Katrín­ar við Tryggvagötu 21 og yfirskrift keppninnar var einfaldlega Brauðtertukeppni Katrínar.

Þátttakan fór fram úr björtustu vonum og bárust fjölmargar brauðtertur í keppnina. Dómnefndin fékk það vandasama verk að velja verðlaunabrauðterturnar en það tókst að lokum.

Troðið var út úr dyrum í brauðtertukeppninni.
Troðið var út úr dyrum í brauðtertukeppninni. mbl.is/Ottar Geirsson

Katrín veitti þrenn verðlaun

Fullt var út úr dyrum þegar úrslitin voru kunngjörð á kosningaskrifstofunni en Katrín kynnti sigurvegarana og veitti verðlaunin við mikinn fögnuð viðstaddra. Eftir að verðlaunaafhendingu fengu gestir að njóta þess að smakka allar þessar dýrindis brauðtertur sem prýddu öll borð skrifstofunnar.

Verðlaun voru veitt fyr­ir:

  1. Verðlaun - Útlit og bragð, full­kom­in sam­setn­ing
  2. Verðlaun - Frum­leg­asta brauðtert­an
  3. Verðlaun - Fal­leg­asta brauðtert­an

Katrín tók ekki þátt í að velja verðlaunabrauðterturnar þar sem hún sat ekki í dómnefndinni. Í dómnefndinni sátu Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans, formaður dómefndar, Siggi Majónes og Illugi Gunnarsson, sonur Katrínar. Dómnefndin hafði úr vöndu að ráða en fjölmargar brauðtertur bárust í keppnina sem heilluðu dómnefndina og gesti sem báru að garði.

  1. Verðlaun hlaut Margrét Sigurbjörnsdóttir fyrir fullkomna samsetningu, bragð og útlit.
  2. Verðlaun hlutu Trausti Þorgeirsson og Björg Vignisdóttir fyrir Roast beef tertuna.
  3. Verðlaun fyrir fallegustu tertuna hlutu Kristín Gunnarsdóttir, Helena Dögg Hilmarsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir, Anna Rut Guðmundsdóttir og Klara Gísladóttir fyrir Bessastaðatertuna.
Katrín Jakobsdóttir ásamt dómnefndinni, Mörtu Maríu Arnarsdóttur formanni dómnefndar, Sigga …
Katrín Jakobsdóttir ásamt dómnefndinni, Mörtu Maríu Arnarsdóttur formanni dómnefndar, Sigga majónes og Illuga Gunnarssyni. mbl.is/Ottar Geirsson

Menningarsögulegt fyrirbæri á Íslandi

„Brauðtert­an er menn­ing­ar­sögu­legt fyr­ir­bæri á Íslandi og gegnum tíðina hefur varla verið veisla eða kaffiboð sem ég hef sótt, án þess að boðið sé upp á brauðtertu. Í það minnsta rækjusalat og Ritz kex,“ segir Katrín sposk á svip og bætir við að þetta hafi verið virkilega skemmtileg keppni. „Ég er þakklát öllum þeim sem tóku þátt í keppninni og gaman að sjá hve margir búa yfir miklum hæfileikum í brauðtertugerð. Brauðterturnar voru margar hverjar listaverk að sjá, hugmyndaflugið algjörlega óþrjótandi og allar brögðuðust þær mjög vel.“

 

Bessastaðabrauðtertan var valin fallegasta brauðtertan í keppninni.
Bessastaðabrauðtertan var valin fallegasta brauðtertan í keppninni. Ljósmynd/Ármannn Jakobsson
Roast Beef brauðtertan var valin frumlegasta brauðtertan.
Roast Beef brauðtertan var valin frumlegasta brauðtertan. mbl.is/Ottar Geirsson
Öll borð skrifstofunnar voru hlaðin brauðtertum.
Öll borð skrifstofunnar voru hlaðin brauðtertum. mbl.is/Ottar Geirsson
Fjölbreytnin í brauðtertugerð var allsráðandi.
Fjölbreytnin í brauðtertugerð var allsráðandi. mbl.is/Ottar Geirsson
Gaman var að sjá hve skapandi þátttakendur voru.
Gaman var að sjá hve skapandi þátttakendur voru. mbl.is/Ottar Geirsson
Form og lögun í brauðtertugerðinni voru fjölmörg.
Form og lögun í brauðtertugerðinni voru fjölmörg. mbl.is/Ottar Geirsson
Margir gestir vildu fá sjálfu með sér og Katrínu.
Margir gestir vildu fá sjálfu með sér og Katrínu. mbl.is/Ottar Geirsson
Unga fólkið lét sig ekki vanta í gleðina með Katrínu.
Unga fólkið lét sig ekki vanta í gleðina með Katrínu. mbl.is/Ottar Geirsson
Borðin svignuðu hreinlega undan brauðtertunum.
Borðin svignuðu hreinlega undan brauðtertunum. mbl.is/Ottar Geirsson
Verðlaunahafarnir fyrir fallegustu brauðtertuna, Bessastaðabrauðtertuna, Kristín Gunnarsdóttir, Helena Dögg Hilmarsdóttir, …
Verðlaunahafarnir fyrir fallegustu brauðtertuna, Bessastaðabrauðtertuna, Kristín Gunnarsdóttir, Helena Dögg Hilmarsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir, Anna Rut Guðmundsdóttir og Klara Gísladóttir. mbl.is/Ottar Geirsson
Gleðin var í fyrirrúmi.
Gleðin var í fyrirrúmi. mbl.is/Ottar Geirsson
Dómnefndin að störfum.
Dómnefndin að störfum. mbl.is/Ottar Geirsson
Gestirnir nutu góðs af keppninni og brauðterturnar runnu ljúft ofan …
Gestirnir nutu góðs af keppninni og brauðterturnar runnu ljúft ofan í mannskapinn. mbl.is/Ottar Geirsson
Lengjan.
Lengjan. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Þessi var vel merkt.
Þessi var vel merkt. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Girnileg brauðterta skreytt með salati og bláberjum og fleira góðgæti.
Girnileg brauðterta skreytt með salati og bláberjum og fleira góðgæti. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Rúllubrauðterta að bestu gerð.
Rúllubrauðterta að bestu gerð. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Falleg hringlaga brauðterta með rækjum.
Falleg hringlaga brauðterta með rækjum. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Frumlegar skreytingar í forgrunni í brauðtertugerðinni.
Frumlegar skreytingar í forgrunni í brauðtertugerðinni. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
Brauðtertusælan var endalaus.
Brauðtertusælan var endalaus. Ljósmynd/Ármann Jakobsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert