Uppáhaldsuppskriftir Mörthu Stewart

Martha Stewart er dugleg kona en matreiðslubók númer 100 er …
Martha Stewart er dugleg kona en matreiðslubók númer 100 er að koma út. AFP/Angela Weiss

Martha Stewart hefur svipt hulunni af nýjustu bókinni sinni. Hin 82 ára gamla eldhúsdrottning prýðir sjálf forsíðu bókarinnar sem er númer 100 í röðinni og ber einfaldlega titilinn MARTHA: THE COOKBOOK. 

Í bókinni er að finna safn af 100 uppáhaldsuppskriftum Stewart auk fróðleiks og frásagna úr eldhúsi hennar. „Ég og lítið teymi unnum hörðum höndum að bókinni saman. Ég safnaði saman öllum mínum bestu ráðum, hugmyndum og myndum í fallega bók sem ég veit að þið munið njóta og halda upp á. Það eru líka margar myndir frá mér persónulega sem hafa aldrei sést áður,“ skrifaði Stewart á heimasíðu sína. 

Á meðal uppskrifta í bókinni eru einskonar pólskir hveiti „dumplings“ sem er uppskrift frá móður hennar. Klassísk eplabaka svíkur engan og er að finna uppskrift að slíkri í bókinni. Rúsínan í pylsuendanum er fræg paella sem Stewart matreiðir fyrir uppáhaldsvini sína á sumrin. 

Fyrsta bókin kom út árið 1982

Fyrsta bók Mörthu Stewart kom út árið 1982 en í henni fjallaði Stewart meðal annars um góð ráð þegar kemur að því að halda veislur, stórar sem smáar. Hinar 98 bækurnar hafa fjallað um allt frá uppskriftum sem má matreiða í pottum yfir í bollakökuuppskriftir. Það er því við hæfi að það megi finna brot af því besta í bók númer 100. 

Martha Stewart prýðir forsíðu MARTHA: THE COOKBOOK
Martha Stewart prýðir forsíðu MARTHA: THE COOKBOOK Ljósmynd/Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert