„Donald Trump hefur keyrt svolítið á þessu“

Jón Gnarr segir að það sé í góðu lagi að hafa grín í kosningabaráttum og að reyni að verða ekki alvörunni að bráð.

Á borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði í gærkvöldi var Jón Gnarr spurður um alvarleika framboðs hans. Andrés Magnússon blaðamaður taldi upp nokkra fyndna hluti sem Jón hefur sagt í kosningabaráttunni og þá svaraði Jón:

„Donald Trump hefur keyrt svolítið á þessu og náð alveg heilmiklum árangri,“ sagði Jón Gnarr og uppskar mikinn hlátur.

Offramboð á leiðindum

Hann sagði allt í lagi að vera með grín og að hafa gaman.

„Sem ég hef alltaf reynt að gera, að halda svona léttleika og verða ekki alvörunni að bráð algjörlega. Að vera ekki fórnarlamb alvörunnar,“ sagði Jón Gnarr.

Hann fylgdi þessu eftir með því að segja að á Íslandi hefði verið offramboð á leiðindum síðustu ár þrátt fyrir enga eftirspurn eftir slíku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert