Ekki marktækur munur á Katrínu og Höllu

Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi frambjóðenda.
Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi frambjóðenda. Samsett mynd

Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi frambjóðenda til forsetakosninga samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir forsetakosningar. 

Könnunin var gerð á tímabilinu 22.-30. apríl og samkvæmt niðurstöðum hennar er Katrín með 29,9% fylgi.

Halla Hrund Logadóttir skipar annað sæti samkvæmt könnuninni með 27,6%.
Ekki er marktækur munur á fylgi Katrínar og Höllu Hrundar segir á Facebooksíðu Félagsvísindastofnunar en stofnunin birti eingöngu niðurstöður könnunarinnar á bandaríska samfélagsmiðlinum. 

Baldur Þórhallsson er í þriðja sæti með tæpan fjórðung eða 23,6%. Fylgi Jóns Gnarr mældist töluvert lægra en fylgi þriggja efstu eða 7,4%.

Mest meðal 60 ára og eldri 

„Katrín sækir fylgi sitt einkum til kjósenda ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Fylgi Katrínar er mest meðal 60 ára og eldri. Kynjahlutfall fylgjenda er nokkuð jafnt. Katrín sækir fylgi sitt frekar til kjördæma á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðarinnar.“

Fleiri karlar hallast að Höllu 

„Halla Hrund höfðar heldur meira til eldri aldurshópa kjósenda en yngri. Halla sækir fylgi sitt til kjósenda allra flokka en þó minnst til Vinstri grænna. Hærra hlutfall karla en kvenna myndu kjósa Höllu Hrund. Fylgi Höllu Hrundar er meira á landbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.

Baldur höfðar til hinna yngri 

Stuðningur við Baldur er mestur frá yngri aldurshópum. Kjósendur allra flokka styðja Baldur til forseta en stuðningur er minnstur frá kjósendum Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Mun hærra hlutfall kvenna en karla styður Baldur. Fylgi Baldurs dreifist nokkuð jafnt yfir öll kjördæmi landsins.

Yngri kjósendur og Píratar 

Jón Gnarr sækir sitt fylgi aðallega til yngri kjósenda og Pírata. Fleiri karlar en konur styðja Jón Gnarr.

Samfylking stærst

Þátttakendur voru einnig spurðir „Ef alþingiskosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“ Samkvæmt könnuninni nýtur Samfylkingin mest fylgis 25,4%. Sjálfstæðisflokkurinn kemur næst á eftir með 19%. Þá mælist Miðflokkurinn með þriðja mesta fylgið eða 13,4%%. Framsóknarflokkurinn mælist fjórði stærsti flokkurinn með 10% fylgi.

Flokkur Fólksins, Viðreisn og Píratar mælast með svipað fylgi eða um 7-8%. Vinstri hreyfingin grænt framboð mælist með undir 5% fylgi.

Könnunin var send út á netpanel Félagsvísindastofnunar. 2.638 manns svöruðu könnuninni. Af þeim tóku 93% afstöðu til spurningarinnar um hvern þau myndu kjósa til forseta ef kosið yrði í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert