Lykilmenn klárir í slaginn hjá City

Erling Haaland.
Erling Haaland. AFP/Darren Staples

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri enska liðsins Manchester City, staðfesti á blaðamannafundi í morgun að lykilmenn liðsins sem hafa verið frá vegna meiðsla séu klárir í slaginn fyrir lokakafla tímabilsins.

Phil Foden, sem var frá vegna veikinda í síðasta lagi er klár í slaginn sem og Ederson og Rúben Dias. Guardiola segir að þeim líði vel og ættu því að vera klárir í leikinn gegn Úlfunum um helgina. 

Þá er Norðmaðurinn Erling Haaland orðinn klár í að byrja en hann hefur verið að koma til baka eftir meiðsli.

„Þegar menn eru heilir verða þeir að vera klárir í að byrja leikina. Ég veit ekki alveg með einn eða tvo leikmenn fyrir morgundaginn en varðandi Haaland, þá er hann klár.“

City mætir Úlfunum á morgun en leikurinn hefst kl. 16.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert