Keflvíkingurinn upp um deild

Rúnar Þór Sigurgeirsson er kominn upp um deild með Willem …
Rúnar Þór Sigurgeirsson er kominn upp um deild með Willem II. Ljósmynd/Willem II

Willem II tryggði sér í kvöld sæti í efstu deild hollenska fótboltans. Liðinu nægði jafntefli á útivelli gegn Dordrecht, 1:1.

Efstu tvö liðin fara beint upp um deild og getur Willem ekki endað neðar en Groningen sem er í þriðja sæti. Ein umferð er eftir af deildinni.

Rúnar Þór Sigurgeirsson var allan tímann á bekknum hjá Willem, en hann hefur lítið spilað undanfarnar vikur, eftir að hafa verið fastamaður í liðinu framan af tímabilinu.

Elías Már Ómarsson lék fyrstu 62 mínúturar með Breda er liðið gerði 2:2-jafntefli gegn Den Haag á heimavelli. Breda er öruggt með sæti í umspili ef liðið sigrar Oss, næstneðsta lið deildarinnar, í lokaumferðinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert