Átti magnaðan leik í Þýskalandi

Viggó Kristjánsson skoraði tíu mörk.
Viggó Kristjánsson skoraði tíu mörk. AFP/Ina Fassbender

Leipzig gerði góða ferð til Göppingen og fagnaði útisigri, 30:27, í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Viggó Kristjánsson átti magnaðan leik fyrir Leipzig og skoraði tíu mörk. Andri Már Rúnarsson bætti við tveimur.

Rúnar Sigtryggsson þjálfar Leipzig sem er í áttunda sæti með 29 stig eftir 30 leiki.

Í B-deildinni vann Minden 30:23-heimasigur á Coburg. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fimm mörk fyrir Coburg.

Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir Minden. Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.

Coburg er í sjöunda sæti með 35 stig. Minden er í 15. sæti með 24.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert