Hættur með Borgnesinga

Atli Aðalsteinsson.
Atli Aðalsteinsson. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Atli Aðalsteinsson hafa komist að samkomulagi um að samningur Atla verði ekki framlengdur. Atli hefur verið þjálfari karlaliðs Skallagríms síðan árið 2019.

Atli stýrði Skallagrími alla leið í oddaleik um sæti í efstu deild á síðasta tímabili en í ár féll liðið úr leik gegn Þórsurum frá Akureyri í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.

Í tilkynningu Skallagríms, sem má sjá hér að neðan, er Atla þökkuð fyrir vel unnin störf ásamt því að greint er frá því að Hafþór Ingi Gunnarsson sé einnig á förum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert