Grindvíkingurinn kjálkabrotnaði

Adam Árni Róbertsson leikur með Grindavík.
Adam Árni Róbertsson leikur með Grindavík. Ljósmynd/Grindavík

Sóknarmaðurinn Adam Árni Róbertsson, leikmaður Grindavíkur, kjálkabrotnaði í leik liðsins gegn Fjölni í 1. umferð 1. deildarinnar í fótbolta á miðvikudagskvöld.

Adam þurfti að fara af velli á 16. mínútu er hann fékk olnbogaskot. Hann staðfesti í viðtali við Fótbolta.net að um kjálkabrot sé að ræða.

Í sama viðtali lýsti hann yfir vonbrigðum með að leikmanni Fjölnis hafi ekki verið refsað fyrir atvikið.

Adam þarf á aðgerð að halda og er óvíst hve lengi hann verður frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert