Nýliðarnir byrja með látum

Abdeen Abdul skoraði tvö.
Abdeen Abdul skoraði tvö. Ljósmynd/Dalvík/Reynir

Nýliðar Dalvíkur/Reynis fara afar vel af stað í 1. deild karla í fótbolta en liðið lagði ÍBV að velli, 3:1, á Dalvíkurvelli í fyrstu umferðinni í dag.

Írinn Abdeen Abdul fer vel af stað með norðanmönnum því hann skoraði tvö fyrstu mörkin á 4. og 15. mínútu. Sverrir Páll Hjaltested minnkaði muninn úr víti á 22. mínútu og var staðan í hálfleik 2:1.

Þannig var hún fram að 70. mínútu er Borja López gerði þriðja mark Dalvíkur/Reynis og þar við sat.

Dalvík/Reynir var þremur deildum fyrir neðan ÍBV fyrir tveimur árum því Eyjamenn voru í Bestu deildinni 2022 og 2023 og Dalvík/Reynir í 3. deild 2022 og 2. deild 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert