Skrifaði undir langtímasamning í Keflavík

Jaka Brodnik og Ólafur Ólafsson eigast við í leik Keflavíkur …
Jaka Brodnik og Ólafur Ólafsson eigast við í leik Keflavíkur og Grindavíkur á þriðjudagskvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Jaka Brodnik hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við körfuknattleiksdeild Keflavíkur og leikur því með liðinu til loka tímabilsins 2026-27.

Brodnik, sem er 32 ára framherji frá Slóveníu, hefur leikið með Keflavík frá árinu 2021. Þar á undan hafði hann leikið í tvö ár með Tindastóli og eitt tímabil með Þór frá Þorlákshöfn.

„Það er mér og minni fjölskyldu mikil ánægja að vera búinn að skrifa undir. Okkur líður afar vel hér í Keflavík, umgjörð eins og hún gerist best og þetta er okkar heimili.

Ég hlakka til að taka slaginn áfram með Sunny Kef, það eru spennandi tímar fram undan. Við ætlum okkur alla leið í keppninni sem nú er í gangi og næstu ár verða afar áhugaverð,“ sagði Brodnik í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Keflavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert