„María, ég er svo stoltur af þér“

María Ósk Skúladóttir og Jón Daði Böðvarsson eignuðust son.
María Ósk Skúladóttir og Jón Daði Böðvarsson eignuðust son.

Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson og viðskiptafræðingurinn María Ósk Skúladóttir eignuðust son á dögunum. Drengurinn er annað barn þeirra saman, en fyrir eiga þau dótturina Sunnevu Sif. 

Jón Daði og María tilkynntu komu drengsins í færslu á Instagram þar sem þau birtu fallega mynd af syninum. Við myndina skrifaði Jón Daði: „Litli drengurinn okkar kom í heiminn í gærkvöldi. María, ég er svo stoltur af þér. Þú varst frábær í gegnum þessa löngu og erfiðu fæðingu. Lífið er svo dýrmætt. Ég er innilega þakklátur.“

Fyrri meðgangan ekki sú auðveldasta

Fjölskyldan er búsett í Bretlandi og hefur verið undanfarin ár þar sem Jón Daði spilar með Bolton Wanderers.

Árið 2022 fór María í einlægt viðtal á fjölskylduvef mbl.is þar sem hún ræddi um móðurhlutverkið, meðgöngu og fæðingu dóttur þeirra sem kom í heiminn árið 2019. Meðgang­an var ekki sú auðveld­asta fyr­ir Maríu, en hún greind­ist með hyp­ereeisi gra­vi­d­ar­um (HG) sem fel­ur í sér mikla ógleði og upp­köst, langt um fram það sem talið er eðli­legt. Hún jafnaði sig þó eft­ir 20. viku meðgöng­unn­ar. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert