Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur móður sem grunuð er um að hafa orðið sex ára syni sínum að bana á Nýbýlavegi.
Konan er annars vegar ákærð fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi, og hins vegar tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi.
Farið var fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konunni í dag en frestur til að gefa út ákæru átti að renna út á fimmtudag.
Konan, sem er fimmtug og af erlendum uppruna, hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í lok janúar.
Konan bjó á Nýbýlavegi ásamt tveimur börnum sínum. Faðir barnanna býr einnig á Íslandi en er búsettur annars staðar.
Þau njóta alþjóðlegrar verndar á Íslandi en hafa verið búsett hér á landi á fjórða ár.